Ópíóðafaraldurinn hefur haft áhrif á líf margra í Vinton-sýslu í Bandaríkjunum. Kennarar kaupa skó fyrir börn ópíóðafíkla sem mæta í skólann í samanlímdum skóm. Þeim, sem deyja af völdum of stórra skammta, fer fjölgandi og fósturbarnakerfið er að springa. Það sama á við um fangelsin. 

Kostnaður sýslunnar við að annast börn fíkla og kostnaður vegna fangelsunar þeirra nemur um 25% af árlegum fjárlögum sýslunnar og það er meira en þau ráða við. Nú telja yfirvöld í ríkinu tímabært að einhver annar borgi reikninginn – lyfjafyrirtækin.

Það er næstum eins og það hafi verið ráðist á okkur, segir Lily Niple sem ánetjaðist ópíóðum sem hún fékk uppáskrifaða frá lækni. Hún náði völdum á fíkninni og hefur nú verið hrein í rúm tvö ár. Það er eins og það væri verið að nota fólk hér. Það var bara vanræksla og fullkomin vanvirðing gagnvart framtíðinni.
