Fjórir hrafnsungar í haganlega gerðu hreiðri uppi í tré, rétt ófleygir, fyrirferðamiklir og gargandi fremur en krunkandi. Þetta mátti sjá og heyra í Þórdísarlundi í Vatnsdal þar sem Húnvetningafélagið hefur ræktað garð sinn og nefnt skjólið eftir	 Þórdísi, dóttur Ingimundar gamla.

Íslenskt félag,     í eigu Milestone, sem fjárfest hefur í byggingarverkefni í miðborg Milwaukee í Wisconsin í Bandaríkjunum, hefur óskað eftir því að dómari þar í borg skipi tilsjónarmann sem yfirtaki og ljúki við verkefnið.
